Tenglar

Auglżsing

Nżjast į HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Atburšarteljari

Innskrįningar kubbur

Leit

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Gušaveigar, gamalmenni og grśtur!

27. febrśar 2010 klukkan 13:49
مرحبا

   Eins og venjulega hefur verið stanslaust stuð í vinabæ, jafnvel Páll Óskar virkar sem óskammfeilinn þunglyndissjúklingur í samanburði við heimafólkið hér. Um daginn ákvað öll Vinabæjarklíkan að skella sér á "pub quiz" á barnum Blómapotturinn eða "The Flower Pot" sem staðsettur er hérna nálægt okkur. Þar sem gatan sem þessi ágæti bar stendur við er með þeim skuggalegri hér í London áttum við von á þónokkrum skríl innandyra en okkur til mikillar skelfingar var barinn vel troðinn af elliærum gamalmennum, hvert með sitt svarblaðið. Við gengum inn og fundum strax hvernig augu allra beindust að okkur, á einhverjum tímapunkti heyrði Valli eina af þeim elliæru pískra "fresh meat" að annari sem var furðulega lík Inga Byrni Albertssyni eftir aðgerð, báðar sleiktu þær síðan útum af svo mikilli ákefð að það small í gómum beggja á svo taktfastan og eggjandi hátt að engu var líkara en að Geir Ólafs væri mættur með Congatrommurnar sem hann spilaði á með Furstunum. Vinabæjarklíkan fékk sér sæti, pantaði sér veigar og svarblöð og setti sig í stöður til að flengja þau gömlu í spurningakeppninni. Okkur til mikillar skelfingar voru lögin sem spurt var útí jafnvel eldri en fólkið sem var að taka þátt og áttum við því littla möguleika á að sigra í keppninni. En þar sem við lifum öll samkvæmt ungmennafélagsandanum vorum við ekkert að æsa okkur of mikið yfir rasskellingunni og pöntuðum okkur meiri veigar og drukkum yfir rólegu spjalli. Eftir stundarsakir fórum við að átta okkur á því að ekki var allt með felldu í atferli gamalmennanna og það má segja að við höfum misst andlitið þegar einn hundgamall gekk til okkar og hrósaði Þór fyrir að vera með stórkostlegan afturenda. Annar gamall lenti svo á djúpu spjalli við okkur um hvað honum þætti gaman að klæða sig í kjóla. Þarna komumst við að því að Blómapotturinn var vinsæll drykkjustaður meðal samkynhneigðra ellismella, og okkur til mikillar ánægju var Þór afskaplega vinsæll meðal gömlu kallana en Valli fékk enga athygli enda jafn ófríður og sjálfdauður orangútan í skírnarveislu.

   Þorrablót Íslendingafélagsins er að nálgast og við hlökkum mikið til að gæða okkur á þorramat, meiri er nú eftirvæntingin samt fyrir saltkjötinu og hangiketinu, svo ekki sé minnst á íslenska lambalærið sem verður á boðstólum. Þetta verður líka góður vettvangur fyrir okkur til að vera innan um jafningja, það er að segja að það verður ekki litið niður á okkur vegna súru lyktarinnar sem er farin að stafa af okkur. Þegar Valli kom heim um daginn var þvottavélin á heimilinu að reyna að flýja og var komin út á mitt eldhúsgolf og við það að slíta úr sér allar leiðslur bæði rafmagns og vatns. Þegar Valli reyndi að koma vélinni aftur á sinn stað slitnaði svo vatnsinntakið frá vélinni og sprautaði vatni yfir alla íbúð. Þ.a.l. höfum við lítið getað þvegið upp á síðkastið og lyktum því eins og rotþró undir pólskum verkamannaskúr á Vaðlaheiði. Til allrar hamingju hefur leigusalinn okkar samþykkt að kaupa nýja þvottavél í nánustu framtíð. 

Lifið heil! 
Valgeir Siguršsson
Helena Steinsdóttir
 
LOL :) Æðislega fyndið
27. febrśar 2010 klukkan 14:00
Karitas
 
Ykkur hefur "the flower pot" ekkert fundist grunsamlega gay nafn yfir bar ??
27. febrśar 2010 klukkan 14:09
Valgeir SiguršssonJś svona eftirį aš hyggja en okkur datt žaš ekki ķ hug į žeim tķma...
27. febrśar 2010 klukkan 14:12
Benni Jón
 
Var það eftir raunir þínar á ellismellahommabarnum sem þú hringdir í mig hágrátandi um miðja nótt í leit að hrósi og viðurkenningu? ...þar sem meðleigjandi þinn í Vinabæ tók til sín allt hólið fyrr um kvöldið á barnum? ...sem mér finnst reyndar stórfurðulegt þar sem þú ert nú með stórglæsilegri karlmönnum sem ég hef á ævi minni hitt :p
27. febrśar 2010 klukkan 14:13
Valgeir SiguršssonHaha takk fyrir hóliš Benedikt og jį, ég žurfti mikiš aš heyra ķ einhverjum sem ég vissi aš vęri smekkmašur į karlmenn og óhręddur viš aš lįta skošun sķna ķ ljós!
27. febrśar 2010 klukkan 14:15
Ragnheišur
 
Er ekki bara nokkuð viðeigandi að vera illa lyktandi á þorrablótum?
27. febrśar 2010 klukkan 14:36
Valgeir SiguršssonJś žaš hefši ég nś haldiš!
27. febrśar 2010 klukkan 14:53
Jonas Eli
 
Brilliant ! hehehe
28. febrśar 2010 klukkan 10:42
Hehehehe! Ég hlæ svo hrikalega yfir færslunum ykkar að ef ég væri gömul kona væri ég með alvarleg þvaglegavandamál við lesturinn! Kræst!!
28. febrśar 2010 klukkan 11:44
Ragnheišur
 
Heijjjj ég var að taka eftir þema í nýju færslunum! Í titlunum! Djöfull er ég kláááár :)
02. mars 2010 klukkan 00:26
Benni Jón
 
Það er naumast sem þið tókuð ykkur á í bloginu ;-p
29. mars 2010 klukkan 12:12

Skrifa athugasemd