Tenglar

Auglýsing

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Leit

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Húsnæði, Halelúja og Heimferðir!

17. febrúar 2010 klukkan 16:23
Sveiki!
   Hér hefur töluvert verið brasað síðan þetta blogg lagðist á hliðina. Eitt af því merkilegasta er það að við höfum flutt burt frá gamla genginu og stofnað okkur nýtt heimili með íslensku pari. Heimilið hefur fengið nafnið Sambýlið Vinabær og hér er ýmislegt brasað til að stytta sér aldur. Þemakvöld hafa gert sér heimakært hér og ósjaldan höldum við ljóðaupplestur með grínrödd, steppdanskeppni á teppalagðri stofunni, gay bingo og kappát.
   Við fluttum ekki langt frá gömlu íbúðinni okkar, 500 m c.a. en erum samt sem áður gríðarlega ánægð, enda nýja íbúðin mun betri en sú gamla sem var farin að lykta eins og megas eftir hálfmaraþon! Eitt af því sem gerir okkur svona ánægð með flutningana er stórfenglegt umhverfið, hér er t.d. kirkja sem kallast... "Living Flames Baptist Church of Eternal Fire", þangað stefnum við á að fara einn sunnudagsmorgun og gæða okkur á smákökum og horfa á fastagestina skvetta yfir sig bensíni í von um að hreinsunareldurinn fari nú að láta hræra á sér.
   Annars erum við orðin voða heimakær hér í London, Valgeir útskrifast í Maí og Marella stefnir á nám í September, þannig að dvöl okkar hér mun að öllum líkindum framlengjast um óákveðinn tíma. Marella veiktist snögglega um daginn og stóðu veikindin sem betur fer stutt. En flökurleikinn var það mikill að Marella hélt því fram að kúkur og gubb væru í raun það sama... sem kemur ekki á óvert þar sem Marella hefur lengi verið þekkt fyrir að vera með rassgatið í framan... afsökunarbeiðni til viðkvæmra er hér með komið á framfæri.

   Það alltaf leiðinlegt að þurfa að kveðja góða menn, en vinur okkar Jónas Haraldsson sendiráðsstarfsmaður og rappari með meiru er að flytja heim um helgina, hans verður sárt saknað og óskum við honum velfarnaðar í nýja starfinu og vonandi sjáum við hann bráðlega.

 Kveðjur, Valli og Marella
Valgeir Sigurðsson
Steinunn
 
Gaman að bloggið sé komið af stað aftur,,, :D
17. febrúar 2010 klukkan 16:46
siggi hjalta
 
....Heimilið hefur fengið nafnið Sambýlið Vinabær og hér er ýmislegt brasað til að stytta sér aldur ....

Hmmm ekkert athugavert við þessa settingu ? :]
Þetta getur nú varla verið það spennandi þetta nýja heimili ef þið eruð að dunda ykkur í þessu alla daga :D
17. febrúar 2010 klukkan 17:20
Marella
 
Jú það er mjöööög spennandi :) hehehehehe
17. febrúar 2010 klukkan 17:23
siggi hjalta
 
Gott að þið séuð ekki fær í að stytta ykkur aldur !! :)
17. febrúar 2010 klukkan 17:58
....stytta sér aldur! hahahaha! Þessi setning er augnakonfekt!
Alltaf þegar ég byrja að lesa bloggið ykkar langar mig mikið til að flytja til London!
Ég ætla að reyna að taka upp á svona þemakvöldum á mínu heimili, kannski pínu sad þar sem við erum bara tvö.. en hvað gerir maður ekki til að stytta sér aldur.. ;)
17. febrúar 2010 klukkan 22:43
siggi sæti en er samt með ræpu..
 
æðislegt blogg :)
18. febrúar 2010 klukkan 11:19
Lína (mamma)
 
Alltaf jafn gaman að lesa bloggið ykkar. Það bætir, hressir og kætir.
21. febrúar 2010 klukkan 13:09
Ragnheiður
 
Hahaha þið eruð svo grilluð :) Gaman að þið séuð loksins byrjuð að blogga aftur! Gay bingó hljómar mjög skemmtilegt.
23. febrúar 2010 klukkan 14:18

Skrifa athugasemd