Ýsa og rúgbrauð!
15. febrúar 2010 klukkan 21:55
Langt um liðið... byrja aftur? Já er það ekki bara... æji..sjáum til.
Marella fór sér ferð í búð áðan til að kaupa Íslenska Ýsu, rúgbrauð og kartöflur! Það var veisla í Vinabæ (nýja íbúðin fyrir þá sem ekkért vita í sinn haus)
Það er btw allt annað að vera til eftir að við fluttum, Sunna og Þór (sambýlingar okkar) eru sæt og fín og Þór er alltaf uppvaskari mánaðarins öðrum til mikillar ánægju og gleði!
Við erum búin að bóka flug heim 17.-25. apríl og svo fer Marella aftur heim 1.-4. maí í boði vinnunnar sinnar en hún tekur eldri drenginn með í þá ferð og er búist við miklu stuði!
Við byrjuðum og kláruðum að horfa á Fangavaktina í gær, mikið hrikalega hlógum við, þó ekki jafn mikið og yfir hinum seríunum. Þá eigum við bara eftir að sjá Samma fara á kostum í "Bjarnfreðarson" en hann sýnir víst stórleik í þeirri mynd drengurinn.
Kveðjum í bili... M og V

Valgeir Sigurðsson

Mér finnst það nokkuð afrek að byrja og enda á sömu seríunni sama dag! Ég er mikill glápari og stóð mig með stakri prýði við að horfa á allar The Office (US) seríurnar á rúmum mánuði - ég var virkilega stolt af frammistöðu minni, en ég verð nú að segja að ég er greinilega ekki með tærnar þar sem þið eruð með hælana í þessum efnum!
Ég er meira að segja búin að tileinka ykkur einn tengil á nýju pæju-síðunni minni!
Hlakka til að fá að fylgjast með :)