Pössun, próf og pöbbarölt!
26. september 2008 klukkan 14:21
Hola!
Það hefur verið mikið að gerast hjá okkur undanfarið, atvinnuleitin hennar Marellu bar loksins ávöxt í formi tveggja barnungra pörupilta sem Marella mun passa að geri engar gloríur á meðan foreldrarnir eru í vinnunni. Fyrir þetta mun hún fá töluvert meiri upphæð borgaða en gamla kaffihúsastarfið gaf henni og eftir tvo daga í vinnunni er hún heldur betur bjartsýn og lætur vel af pörupiltunum og fjölskyldu þeirra.
Valgeir hefur verið upptekinn við að læra fyrir próf og hefur heil vika verið hertekinn sökum þess. Prófið fór svo fram í gær, fimmtudag, og gekk það mjög vel og Valgeir á von á að fá nokkuð háa einkunn úr því. Eftir próf skellti allur bekkurinn sér svo á knæpu og ræddi saman um prófið, Valli svolgraði í sig tveimur kollum eins og enginn væri morgundagurinn, hann gleymdi hinsvegar alveg að fá sér að borða (megrun sjáiði til) svo eftir þessa tvo öllara var kallinn orðinn rallhálfur og farinn að syngja ættjarðarsöngva og bjóða mönnum í sjómann. Þegar heim var komið (um kvöldmatarleiti) leið Valla eins og hann væri að koma af fylleríi með togarjómönnum á búllu í Húll, svo hann borðaði eins og Gaui litli í fermingarveislu og lagði sig í smá stund til að jafna sig af þessu hrikalega magni af áfengi! Annars er það að frétta af skólanum að loksins er stærðfræðin að minnka og það er búið að sleppa bekknum í stúdíóin sem þýðir að nú verður Valli í skólanum sólarhringunum saman.
Að öðru leiti er allt gott að frétta af okkur og sendum við kveðjur til allra heima. Góðar stundir!
Valgeir Sigurðsson







kv. mamma